ALEXANDER SVAVAR

Verið velkomin

11.10.2006 18:39:41 / eldhress

Fyrsti bekkur

Fyrir þá sem ekki vita þá er ég byrjaður í 6 ára bekk8) ekkert smá stoltur.

Og mér gengur alveg alveg hrikalega vel, farin að lesa kann ALLA STAFINA:D, get meira segja talið upp á alveg billjón eða sona næstum því;). Labba sjálfur í og úr skólanum sem er ekkert smá mikið sport. og jamm hef gert ýmislegt af mér sem er ekki prenthæft hér en þið sem þekkið mömmu mína vitið hvað það er8| kellingin var sko ekki hress.. ó nei. Annars er ég bara algjör engill eða eins nálægt því og hægt er.

ALLi önd;) kveður


» 3 hafa sagt sína skoðun

11.07.2006 22:43:45 / eldhress

HEHEHEHEH

Jam Jam mamma hefur ekkert að gera og þess vegna um að gera að halda áfram með þessa síðu. ÞANNIG HÉR MEÐ ERUM VIÐ VIRK8|

» 2 hafa sagt sína skoðun

22.03.2006 22:29:13 / eldhress

Halló allir:)

Já svona er nú lífið mamma er svo löt að hún bara hefur ekkert bloggað fyrir mig.. ég bara spyr hvar er forgangsröðin eiginlega hjá henni:evil:. en svona burt séð frá þessu þá hugsar hún voðalega vel um mig;)

En af mér er sko fullt að frétta ég er byrjaður að hjóla alveg á fullu því ég fékk loksins nýjan hjálm. þannig var að mér tókst að týna þeim gamla og kerlingin varð alveg vitlaus það tók mig marga mánuði að vinna mér inn fyrir nýjum. og LOKSINS FÉKK ÉG NÝJAN:D og ég passan SKO vel. Svo má ekki gleyma að ég er að fara byrja í 6ára bekk í águst og mér fynnst það rosa spennó. búin að fá fullt að nýju dóti sem ég á að nota þá.. sem er mjög spennandi

en já bless þanngað til næst

Alli önd:haha:


» 1 hafa sagt sína skoðun

13.01.2006 20:00:15 / eldhress

úpppps

sko mamma er frekar léleg í þessu, en þetta fer að breytast, kata frænka eða Kristín maría fara bráðum að koma og kenna mömmu að setja inn myndir eða vonum það allavega,, eru kannski einhverjir sjálboðaliðar???

» 3 hafa sagt sína skoðun

24.12.2005 15:50:23 / eldhress

GLEÐILEG JÓL

HÓ HÓ Ég vildi bara óska ykkur öllum gleðilegra jóla og hafið það sem best um jólin. Ég ætla allavega að gera það og hlakka ekkert smá til að opna alla þessa pakka VÁÁÁ þeir eru svo margir:lol:. Ég fékk líka pakka í skóinn sem var peysa og svo lego, enda hef ég verið svaka stilltur8| á þetta allt alveg skilið.;)

kveðja

alex jólasveinn


» 0 hafa sagt sína skoðun

17.12.2005 23:11:56 / eldhress

halló

Nú er afmælið mitt búið og bara jólin alveg að koma. En ég fékk alveg heling í afmælisgjöf. fullt af dóti og fötum:D. Á morgun er ég og mamma að fara á jólaball og ég er rosa spenntur hlakka mest til að hitta hann jóla;) og ef einhver sem les þetta langar með þá eigum við ein auka miða:!:


» 0 hafa sagt sína skoðun

07.12.2005 01:27:43 / eldhress

ÉG Á AFMÆLI Í DAG

Jæja kæru vinir þá er dagurinn runninn upp,,loksins loksins á ég AFMÆLI:lol:. og orðinn ekkert smá stór 5ára.8) Ég hef beðið mjög lengi eftir þessum degi. veit ekki alveg hvort ástæðan sé í raun að verða 5 eða pakkarnir en við skulum bara ekkert ræða það neitt8| meira. Í dag mun ég gera einhvað skemmtilegt með foreldrum mínum og halda svo veislu á laugardaginn.

Segji betur frá þessum merkis degi í kvöld

Alexander afmælisbarn:lol:

 

 

>


» 5 hafa sagt sína skoðun

29.11.2005 21:06:57 / eldhress

Gerum góðverk

Flestir eru sammála um að besta jólagjöfin sem þeir hafi fengið hafi verið þegar þeir gátu gefið af sér til þeirra sem minna máttu sín, glatt döpur hjörtu, lagt fátækum lið, beðið fyrir eða hjálpað veikum. Það er einmitt þetta sem jólin snúast um. Jólin eru ljós og kærleikur. Jólin eru besti tíminn til þess að gera góðverk, biðja fyrir náunganum og sjálfum sér, og hjálpa öllum þeim sem þess þurfa. Bænin er sterk allan ársins hring, en í kring um jól er hún samt sérstaklegea sterk vegna þess hvernig andrúmsloftið er, allir eru móttækilegur og farvegur bænarinnar er greiðfærari, vegna þess að almenningur er jákvæðari. Nýtum þessar aðstæður,  látum okkur líða vel og gerum góðverk. Hjálpum til þar sem þörf er á, biðjum fyrir sjúkum og þeim sem eiga bágt, tökum utan um vini okkar, látum kærleikann flæða hindrunarlaust um brjóst okkar og framkvæmum það góða sem þar býr. Það þarf ekki alltaf að vera stórt, og jafnvel því minna sem okkur finnst það vera því áhrifaríkara er það.Góðar heimsóknir þar sem fólk gefur sér tíma til að stoppa og spjalla og síðast en ekki síst að hlusta er betra heldur en nokkur keypt gjöf.  Þetta er það sem jólin snúast um ,,kærleikur,, að allir séu vinir og að við getum lagt öðrum lið.  Láttu verða af því um þessi jól að gera eitthvað gott sem býr í brjósti þér og finndu jólin í hjarta þínu því þar eru jólin.

Alexander.. 


» 4 hafa sagt sína skoðun

29.11.2005 20:54:41 / eldhress

Jólasveinn

Ég er jóla jóla jólasveinn sem Elskar jólin. Í gær var svaka stuð ég fór í jólasveina leik með mömmu ég lét hana hafa jólasveina húfu og við skreytum allt húsið, ég hef sko sterkar skoðanir á þessu öllu saman. mamma lítur svona út eftir gær daginn8| en núna er allt voða fínt hjá okkur svo áðan þegar ég var búinn á æfingu setti pabbi jólaseríu og greynar á svalirnar og ÉG fékk að stinga í samband þannig að ljósið kom:D svaka flott.. þið getið bara keyrt fram hjá og séð sjálf:D en núna ætla ég í bað en fyrst syngjum við..


Ég sá mömmu kyssa jólasvein,
við jólatréð í stofunni í gær.
Ég læddist létt á tá
til að líta gjafir á,
hún hélt ég væri steinsofandi
Stínu dúkku hjá,
og ég sá mömmu kitla jólasvein
og jólasveinnin út um skeggið hlær.
Já sá hefði hlegið með
hann pabbi minn hefð\'ann séð
mömmu kyssa jólasvein í gær.

Góða nótt

Alex jólabarn..


» 0 hafa sagt sína skoðun

26.11.2005 17:04:54 / eldhress

Púki

Það er bara gaman hjá mér,, amma Kolla sókti mig í leikskólann í gær og við ætluðum upp í sumarbústað, þar sem ég bauð mér sjálfur þanngað en við fórum svo ekkert afi einhvað upptekinn. Þannig amma tók ekkert annað í mál en að leyfa mér að gista hjá þeim alla helgina,, ;)ég reyni eins og ég get að vera stilltur en í gær hljóp einhver púki í mig, um hálf tólfleytið í gær leyst ömmu ekkert á blikuna þar sem ég vildi alls ekki fara að sofa, faldi mig bara og lét þau gömlu leita af mér um allt hús:lol: ekkert smá gaman. Amma hringdi þá í mömmu8|. Upps eftir símtalið var ég fljótur í bælið,, viti menn mamma ætlaði að sækja mig og það vildi ég alls ekki, þannig ég ákvað að hlíða. Svo í dag erum við bara búinn að vera stússast einhvað. En í kvöld verð ég sko stilltur og hlíði ömmu því hann jóli er að fylgjast með mér og ég ætla að fá einhvað flott í skóinn:lol: svo bless þanngað til næst

kveðja

Alli jólasveinn


» 2 hafa sagt sína skoðun

18.11.2005 21:17:31 / eldhress

Hæ hæ

Það er nú komið langt síðan ég bloggaði síðast en trúið mér ég hef gilda ástæðu:| en af mér er allt gott að frétta. Hef verið alveg ljómandi hraustur eftir hálskirtlatökuna og ekkert smá fínt að geta sagt, ef mér er boðið einhvað sem mér finnst vont að ég meigi bara alls ekki borða það. Því fólk var hætt að taka mark á ofnæminu mínu:!: en jólin nálgast og ég er kominn í jóla skap. í dag sókti langamma mín mig í leiksólann og ég var svo heppinn að hún gaf mér jóladagatal og ég spyr TIL HVERS AÐ GEYMA ÞAÐ FRAM AÐ JÓLUM,, halló hvað er það??? En allavega langaði mig alveg hræðilega að smakka þannig að ég laumaðist inn í herbergi.. Upps mamma kom og allt í einu vantaði í dagatalið.. mamma alvag vitlaus. En í alvöru það datt bara úr og bráðnaði. mamma segir að jóli verði ekki glaður. En ég skil ekki ef jóli gefur óþekkum krökkum eitraða bollu í skóinn hvað skeður þá, þannig ég spurði mömmu: mamma vill jóli að óþekku börnin deyji8|. en mamma útskýrði fyrir mér að bollan er ekkert svo eitruð:$ Þannig að mér líður miklu betur:D

Alli


» 5 hafa sagt sína skoðun

09.11.2005 19:38:31 / eldhress

Til Katrínar Ýr

Elskulega besta frænka mín viltu passa mig á Föstudags kvöld.... plís

þinn elskandi frændi Alexander:lol:


» 5 hafa sagt sína skoðun

09.11.2005 19:34:50 / eldhress

Næstum batnað

Mér er eiginlega bara batnað og bráðum fer ég að fara á leikskólann á ný, en þangað til mun ég vera hjá kollu ömmu á meðan m og p vinna. Í dag í hádeginu var ég svo svangur að ég bað ömmu um kjöt og læti í matin og auðvitað var amma fljót að redda því hringdi bara í afa í vinnuna og lét hann fara í búð ,,maður er sko degraður:D þar á bæ,,mamma þekkir þetta8| en annars er bara ekkert meir af mér að frétta....kem með einhvað slúður seinna. 

» 1 hafa sagt sína skoðun

05.11.2005 21:15:48 / eldhress

alveg eld hress

Jæja gott fólk núna er það versta vonandi afstaðið ég er bara búinn að vera eld hress hérna heima með honum pabba mínum þar sem við báðir þurftum nú að fara í aðgerð. En við erum búnir að vera spila lúdo og slönguspil sem er bara gaman en pabba fynnst ekkert voða gaman að spila við mig þar sem ég fæ alltaf 6 :lol:í öllum köstum ,,og honum er farið að finnast það einhvað skrítið,,.En ég held að hann sé bara einhvað tap sár. Svo erum við líka búnir að horfa á alveg helling af video þannig það er bara lúxus líf á okkur feðgum. Svo nátlega er ÍS hjá mér í flest mál sem ég fíla alveg í botn:D en núna er ég að fara að horfa á Batman begins sem ég er búinn að vera að bíða eftir síðan í gær,, ekkert smá spentur, og mamma er að baka fyrir okkur feðga;) þannig bæbæ....Alli

» 5 hafa sagt sína skoðun

02.11.2005 18:51:23 / eldhress

Aðgerðadagurinn:(

Í morgun fór ég í hálskirtlatökuna og stóð ég mig eins og hetja:D. Mætti á spítalann klukkan hálf 8 í morgun, það var nú frekar erfitt að vakna,, er sko alls enginn morgunhani en mútta náði nú samt að draga mig á fætur þá fékk ég svona töfraplástur á hendina svo ég mundi ekki finna fyrir því þegar nálinni væri stungið í mig8|. svo var ég svæfður. Hjúkkurnar höfðu nú meirri áhyggur af mömmu en mér:| og bleiku kúlurnar voru teknar. svo var mamma kölluð til þegar ég vaknaði og ég heimtaði bara vatn. svo var ég færður á deildina sem ég átti vera í yfir daginn þar var nú bara frekar gaman fullt af teiknimyndum og dóti. Svo kom hún Kolla amma til mín svo mamma gæti heimsókt pabba því hann var líka í aðgerð ,,bara allt að gerast,, svo má ekki gleyma að mamma og pabbi gáfu mér verlaun því ég var svo duglegur ég fékk brjálað flotan batman karl sem blikkar rauðuljósi,, alltaf að græða;)

alexander


» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2
Ef þér leiðist